Tinna Rós

Tinna Rós

05.10.2008 16:43:27 / tinna_ros

Svalbarði!

Jæja þá er komið að næstu ferðasögu!
Ég hafði alltaf frá því að Minney talaði um það að flytja á Svalbarða hugsað um það að heimsækja hana þangað. Og ég lét verða af því... :haha:
Þriðjudaginn 23. september lagði ég af stað og það var frekar tímefrekt ferðalag fyrir höndum. Ég fór upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, flaug síðan til Osló þar sem ég beið í 17 klst eftir næsta flugi til Svalbarða. Biðin var ekki mjög viðburðarrík en þó hafði ég ferðafélaga en Halli kærasti Marínar sem er vinkona Minneyjar var að fara í sömu flug og ég. Við fundum okkur bekki í flugstöðinni í Osló og komum okkur fyrir og biðum. Ég fékk lánaðan ferða DVD spilara hjá Selmu sem bjargaði mér algjörlega í þessari bið ásamt þessu skemmtilega listaverki.
Miðvikudaginn 24. sept. fór ég loksins frá Osló til Svalbarða, ég náði að sofa mest alla flugferðina þar sem ég hafði ekki sofið mikið um nóttina. Minney, Anna Stella og Marín tóku allar á móti okkur og var voða gott að vera loksins komin. Við tók bara rólegheit. Anna Stella bakaði handa okkur vöfflukökur en fyrir þá sem ekki vita eru það þykkar pönnukökur gerðar úr vöffludeigi, mjög gott með súkkulaði eða bara smjöri og osti :d Við horfðum síðan á eina bíómynd sem ég dottaði yfir ca 5 sinnum, borðuðum kvöldmat og síðan fór ég bara í rúmið, alveg búin á því.
Fimmtudagur 25. sept. Ég náði að sofa til kl 11 um morguninn en Minney var líka í skólanum til 11 þannig að það var allt í góðu. Minney sagði mér síðan að klæða mig vel því það væri kalt og labba niður í skóla og taka Halla með mér. Við löbbuðum niður í skóla og síðan var tekinn leigubíll á skotæfingasvæðið þar sem ég og Halli fengum að prófa að skjóta af riffli 8) Stelpurnar skutu líka en þær hafa samt oft gert þetta áður svo þetta var ekkert nýtt fyrir þeim.

Þetta var kaldasti dagurinn þarna og var okkur orðið frekar kalt við að skjóta þannig að eftir þar fórum við bara heim og hlýjuðum okkur og fengum okkur að borða. Síðan fórum við í rugby, það var mjög gaman líka en mjög kalt. Held það hafi farið í ca 5° frost þarna. Eftir það var bara sturta, nokkrir bjórar og síðan bara að sofa.
Föstudagur 26. sept. Ég klæddi mig sérstaklega vel þar sem mér hafði orðið frekar kalt daginn áður en nú var líka farið að snjóa. Ég, Minney og Anna Stella höfðum ákveðið daginn áður að ganga upp á jökulinn en skyggnið var svo lítið að við ákváðum að fara frekar að skoða gamla kolanámu sem er að hruni komin uppi í fjalli rétt fyrir ofan bæinn.

Eftir þessa litlu fjallgöngu fórum við í búðina til að versla fyrir ferðina sem fyrirhuguð var um helgina og keyptur bjór fyrir kvöldið. Um kvöldið var síðan "Friday gathering" þar sem allir krakkarnir úr skólanum koma saman og drekka bjór og hafa gaman og einhverjir fara síðan í sjóinn eftir á brrrrrr.... Ég gerðist ekki svo kræf. Oftast eftir þetta er eftirpartý en við Minney fórum bara snemma heim þar sem sérstaklega ég vildi vera hress fyrir deginum á eftir.
Laugardagur 27. sept. Ég, Minney, Anna Stella, 3 aðrar stelpur og einn strákur höfðum ákveðið að fara í Björndalen sem er kofi í ca 4-5 tíma göngufjarlægð frá bænum þeirra. Mest öll leiðin er eftir vegi svo það gekk ágætlega fyrir mig þar sem ég hef ekki mikið úthald. Í Björndalen er ekkert rafmagn, ekkert vatn og enginn hiti nema sá sem maður fær með því að kvekja í kamínu en til þess þarf maður að hafa eldivið og kol. Eitthvað var af eldivið á staðnum en kolin tókum við úr hrúgu sem var á vegi okkar á leiðinni. Þegar við komnum á staðinn birtist síðan annar strákur sem hafði hjólað á eftir okkur eftir veginum. Í þessari ferð og öllum ferðum þar sem farið er út úr bænum verður alltaf að hafa meðferðis byssu og einn úr hópnum verður að vera ábyrgur fyrir henni þ.e. verður að vera alls gáður alla ferðina. Anna Stella tók þann hlut á sig. Kofinn var ískaldur þegar við komum og við byrjuðum strax að reyna að kynda upp. Og síðan var farið í það að elda, til þess að koma smá hreyfingu á líkamann til að halda hitanum. Um kvöldið var hitinn orðinn mátulegur inni, allavega nóg til þess að ég gat farið að sleppa dúnúlpunni :d Í kofanum var ekkert klósett þannig að við urðum alltaf að fara út að pissa en það var svakalega kalt. Eitt skiptið ætlaði ég ein út og fékk lánað ennisljós hjá Minney, þetta ljós lýsti ekkert svakalega vel frá sér en um leið og ég kom í dyrnar þá sá ég bara þessi svakalegu krípí augu á móti mér og ég hljóp strax aftur inn í kofann og sagði fólkinu að það yrði einhver að koma með mér, þá kom með mér stelpa með betra ljós og þá sáum við þetta betur en þetta var nú bara refur.

Um nóttina dó eldurinn í kamínunni en þökk sé góðum svefnpokum varð okkur bara ekkert kalt alla nóttina en ég get þó ekki sagt að ég hafi sofið eitthvað svakalega vel. En þetta var samt mjög skemmtileg upplifun.
Sunnudagur 28. sept. Við vöknuðum um kl 11 í skítakulda en ég klæddi mig bara strax í öll hlýju fötin mín og var því ekki kalt lengi. Síðan var ákveðið að ganga yfir fjallið til baka. Ég hélt að ég kæmist þetta ekki. En það tókst, segi nú ekki að ég hafi farið létt með það en þetta tókst að lokum.


Uppi á fjallinu sáum við hreindýrahjörð. En þau fóru um leið og við birtumst. Niðurleiðin var frekar erfið líka, mjög sleipt, bratt og mikið af grjóti sme hægt var að detta um. En allt saman tókst þetta og við vorum komin heim eftir 6 tíma erfiða fjallgöngu. Kvöldið fór bara í það að slappa af og ég fór snemma að sofa.
Mánudagur 29. sept. Ég svaf bara út en ég átti svipað ferðalag fyrir höndum, fór út á flugvöll og flaug síðan til Osló með smá viðkomu í Tromsö þar sem við þurftum að fara úr flugvélinni, sækja farangurinn okkar, tékka okkur inn aftur og fara aftur í sömu flugvél í sömu sæti. Eitt það kjánalegasta sem ég hef gert lengi. Í Osló var 16 klst bið og þar var aftur ferða DVD spilarinn sem bjargaði mér. Eftir þessa 16 tíma flaug ég síðan heim og fór beint í rúmið mitt.
Alltaf gott að koma heim en þessi ferð var frábær og mig langar að þakka Minney æðislega fyrir að hafa nóg fyrir mig að gera. Mér allavega leiddist aldrei :haha::haha:

Later Tinna Rós:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 23:00:04 / tinna_ros

Ferðasaga

Hæ! 8)

Nú er ég komin heim og alvaran tekin við aftur 8| Ég var að hugsa um að deila með ykkur smá ferðasögu ;)
Mánudagur 4. ágúst. Við Óli sváfum til ca 10 um morguninn, kláruðum að hafa okkur til og biðum síðan eftir að við yrðum sótt. Vignir maður tengdamömmu minnar sótti okkur síðan um kl 13 og við fórum og tékkuðum okkur inn. Svo var bara boarding time og vélin fór í loftið á réttum tíma, sem er víst ekki algengt með Iceland Express. Á leiðinni gerðum við Óli ýmislegt til að stytta okkur stundir en Óli fór í einhverja spilabúð og keypti allskonar spil og púsl til að hafa í flugvélinni. Við lentum á flugvellinum í Barcelona um kl 22 að staðartíma. Það var rosalegur hiti. Við fórum með leigubíl í íbúðina sem við vorum í og þar var loftkæling sem bjargaði okkur alla vikuna. Síðan fórum við bara á einhvern pizzastað til að borða og fórum bara fljótlega að sofa.

Þriðjudagur 5. ágúst. Sváfum til hádegis sem var mjög gott. Það tók sinn tíma að koma sér út úr húsi þar sem við vorum 7 og allir þurftu að borða, klæða sig og bera á sig sólarvörn. Við fórum út, löbbuðum á verslunar götu sem heitir Passeig de Gràcia þar sem eru bara dýrar merkjabúðir en þó mjög skemmtilegt að labba þar og bara skoða. Neðarlega þar voru svo líka Zara og H&M. Svo komum við að Catalunya torginu og löbbuðum svo niður La Rambla sem að er verslunar og veitingahúsagata sem var mjög skemmtilegt að labba niður. Fórum niður að Ólympíuhöfninni og þar í moll. Löbbuðum síðan eftir sjónum og upp aftur að íbúðinni, þetta tók svo til allan daginn en við fórum bara að borða kvöldmat þegar þetta var búið og fórum á þann alversta veitingastað sem til er í veröldinni. Matseðillinn var bara á spænsku en þjónninn sagði "I translate I translate" Þannig að við ákváðum bara að taka sénsinn og pöntuðum okkur mat. Óli Þór og Ingimundur pöntuðu sér eitthvað sem hann sagði að væri steik og franskar. Ég og Vignir pöntuðum okkur eitthvað sem hann sagði "It's like Chicken" þannig að við bara okey sniðugt fáum okkur svoleiðis. Og Þorbjörg fékk sér saltfisk. Steikin sem strákarnir fengu var ca hálfur cm að þykkt öll þakin í sinum og olíu, franskarnar voru líka þaktar olíu. Þetta sem var "Like Chicken" Er ég alveg nokkuð viss um að hafi verið dúfa og þetta var EKKERT eins og kjúklingur hvorki á bragðið né áferðin. Þetta var einnig þakið olíu og ógeði og með þessu voru líka franskar. Saltfiskurinn var líka feitur og óætur. Á undan var borið fram ógeðslegasta brauð sem ég hef á ævinni smakkað. Fyrir þetta vorum við rukkuð um 73 evrur en fyrir þá sem ekki vita er það rúmlega 9 þúsund krónur. Þetta var eina skiptið þarna úti sem að við vorum rænd.

Miðvikudagur 6. ágúst. Við vöknuðum um hádegi. Og tíminn sem fór í að koma sér út minnkaði aðeins. Við fórum og skoðuðum krikju sem Gaudi teiknaði, Sagrada Famìlia sem er alveg svakaleg hún er svo flott og er ekki tilbúin ennþá en er búin að vera í byggingu síðan 1882
.
Það eiga eftir að koma á milli turnanna ennþá hærri turnar, það vantar alveg eiginlega allt sem á að vera þarna á milli. Það var hægt að fá að komast upp í einn turninn en röðin var svo löng að við lögðum ekki í að bíða eftir því.
Síðan fórum við í einn flottasta dýragarð sem ég hef séð. Hef reyndar ekki séð marga en þessi stendur alveg upp úr. Þar voru allar apategundir sem maður getur mögulega ímyndað sér að séu til í heiminum einnig margar margar kisutegundir og ljón og allt. Hér er ein svaka fín apamynd, er ekki viss um að þið áttið ykkur alveg á henni en um leið og þið gerið það þá er hún æðisleg :haha::haha:


Fimmtudagur 7. ágúst. Við ákváðum að vakna á skikkanlegum tíma þennan morguninn en komum okkur þó ekki á fætur fyrr en um kl 11 :$ Tíminn sem tók að taka sig til minnkaði aðeins meira og við fórum á ströndina. Ég hef nú heldur ekki séð margar strendur en þetta er vægast sagt sú ógeðslegasta sem ég hef séð, maður þurfti alls staðar að passa sig að stíga ekki á sígarettustubba eða glerbrot svo ekki sé minnst á sjóinn hann var ekki mjög spes enda fór ég bara einu sinni í hann þennan daginn og lét það gott heita lá svo bara og reyndi að tana eitthvað þó ekki hafi virkað mjög vel vegna mjög sterkrar sólarvarnar. Meira var ekki gert þann daginn nema að ákveða hvað gera skyldi daginn eftir. Það var að fara í Port Aventura. Þannig að ákveðið var að vakna snemma daginn eftir.

Föstudagur 8. ágúst. Við vöknuðum kl 7 um morguninn 8| Það tók ennþá minni tíma núna að taka sig til en við vorum farin að venjast því að það þurfti að gera nóg áður en farið var af stað. Við vorum komin út um kl 8 og ætluðum beint í neðanjarðarlestina sem síðan var biluð þannig að við þurftum að taka bus á næstu stöð til að fara í hana. Frá henni fórum við í ofanjarðarlest sem við vorum í í klukkutíma og korter. Þá komum við að Port Aventura sem er risastór rússíbanaskemmtigarður. Þar vorum við allan daginn og náðum samt ekki að klára öll tækin. Reyndar fer alltaf mikill tími í raðir í svona garði. Einn rússíbaninn fór á 135 km hraða á 3 sek. Annar sem er nefndur the red dragon er svakalegur. Hann fer 7x á hvolf og maður var hálf vankaður þegar maður stóð upp úr honum aftur. Þetta var frekar dýrt en ALVEG þess virði.
Þetta er the red dragon eða dragon kahn:

Þetta var rosalega góður dagur og við komum ekki heim fyrr en seint um kvöldið, en það er alveg ákveðið að þangað fer ég aftur alveg bókað!

Laugardagur 9. ágúst. Búin á því eftir daginn áður sváfum við til kl 2 um daginn. Við Óli ákváðum að fara í smá verslunarleiðangur og eyddum þó nokkrum peningum en hefðum örugglega ekki fengið jafn mikið fyrir peninginn hérna heima. Þorbjörg átti líka afmæli þennan dag og bauð okkur því út á borða á rosa fínan veitingastað. Þar fengum við okkur steik í aðalrétt og ég fékk mér mojito sorbet í eftirrétt. MMmmm... það var rosalega gott. Eftir það fórum við á bar, ætluðum að reyna að finna okkur kokteil en það gekk ekki. Ég held að það séu bara ekki til kokteilar í þessari borg.

Sunnudagur 10. ágúst. Við sváfum líka frameftir þennan dag og fórum síðan aftur á ströndina, þennan dag var meiri sól, sjórinn heitari og meira brim í sjónum og strákarnir voru alveg að fíla það og voru mikið í sjónum. Síðan var farið McDonalds að borða og síðan bara heim í sturtu. Um kvöldið var tekið bararölt til að vita hvort við myndum finna kokteil en fólkið á þeim stað skildi ekki einu sinni orðið kokteill :| Þó settumst við þar, drukkum einn drykk og fórum síðan bara í búðina keyptum okkur smá að drekka og fórum svo bara heim í íbúðina.

Mánudagur 11. ágúst. Við urðum að vakna snemma því við áttum að skila af okkur íbúðinni kl 10 um morguninn. Það tókst og við gátum geymt farangurinn okkar á skrifstofunni hjá þeim en urðum að sækja hann aftur fyrir kl 6 vegna þess að þá lokaði skrifstofan. Í milli tíðinni fórum við og skoðuðum Gaudí garðinn sem er hannaður af sama manni og kirkjan, hann var svaka flottur. Hefði samt viljað hafa meiri orku í að ganga meira um hann. Við fórum síðan um 5 leitið og sóttum töskurnar okkar og tókum leigubíla bara beint út á flugvöll. Þar biðum við í 3 og hálfa klst áður en við gátum tékkað okkur inn.

Síðan lá bara leiðin heim.

Svona var ferðin okkar í stórum dráttum, með nokkrum myndum ;) Það er líka alveg pott þétt að til Barcelona þarf ég að fara aftur þar sem ég náði ekki að skoða helminginn af því sem mig langaði til að skoða. Og náði ekki að klára allan Port Aventura garðinn ;)

Eftir að við komum heim vann ég í viku og hætti svo að vinna þar sem ég var að fara að byrja í skólanum.
Helgina eftir að ég kom heim var ég beðin um að vinna í 66° norður á laugardeginum og ég gerði það síðan skelltum við Selma okkur saman á Blómstrandi daga í Hveragerði fórum á brekkusöng, flugeldasýningu, ball með Á móti sól og gistum síðan hjá Kolbrúnu sys um nóttina. Takk fyrir okkur!!
Um síðustu helgi var síðan Alþjóðarallið. Stærsta keppni sumarsins þar sem keppninni er skipt í 4 leggi og eknir eru í heildina rúmlega 1000 kílómetrar. Mestan hluta af keppninni gekk voða vel hjá strákunum mínum og þeir héldu forystu í sínum flokki þangað til 4 leiðar voru eftir á síðasta legg og ekkert tækifæri til að koma inn aftur. Þá sprakk hjá þeim dekk og adrenalínið tók yfir alla skynsemi hjá þeim og í staðin fyrir að skipta um dekk ákváðu þeir að keyra á sprungnu og þeir misstu allan hjólabúnað undan bílstjóramegin að aftan. Þar með voru þeir dottnir úr keppni. En þeir koma inn aftur tvíefldir í næstu keppni ;)

Skólinn átti að byrja hjá mér á mánudaginn. Þá var kynning fyrir nýnema á verkfræði- og náttúruvísindasviði en síðan hef ég verið að fá tölvupósta frá kennurum um að kennsla hefjist ekki fyrr en í næstu viku. Þannig að ég hef verið í fríi alla vikuna. Nema að ég fer í tvo tíma í fyrramálið og síðan bara búin.

En jæja. Er þetta ekki komið gott í bili??
later Tinna Rós

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.08.2008 23:17:32 / tinna_ros

Gleðidagurinn mikli

Jæja gott fólk.
Í gær upplifði ég minn mesta gleðidag í allt sumar! Eins og einhverjir vita þá hefur þetta sumar ekki alveg gengið eins og ég hefði viljað að það myndi gera. Kata mín eignaðist kettlinga og er búið að ganga frekar erfiðlega að koma þeim út, við áttum ekki að fá að halda íbúðinni sem við erum í eins og kom fram í bloggi hér fyrir neðan og við þurfum að láta frá okkur Kötu en enginn vill eiga hana, ég hef ekki verið að fá póstinn minn sendan til mín og einnig hefur verið ansi mikið vesen í kringum rallyskoðanir þar sem helv... skoðunar bíllinn ætlar aldrei að koma sér á leiðarenda.

Í gærdagurinn byrjaði síðan ágætlega en ég hafði ansi miklar áhyggjur af því hvernig við ættum að vera búin að losa íbúðina af dóti og vera búin að þrífa allt fyrir hádegi 14. ágúst þar sem við komum ekki heim að utan fyrr en aðfaranótt 12. Um hádegi hringdi í mig kona að nafni Randý sem vinnur hjá Keili, hún sagði mér að það væri búið að ganga svo vel að úthluta íbúðum að það ætti að vera hægt að láta okkur hafa aðra 3 herbergja en þó ekki þessa sem við erum í. Ca. háftíma seinna hringdi hún aftur og sagði mér að með smá krókaleiðum náði hún að redda því þannig að við þurfum ekki að flytja :d:d:d:d Hún náði að ráðstafa íbúðinni aftur á okkur þannig að við verðum hér áfram. En þó þurfum við ennþá að losa okkur við Kötu þar sem ofnæmi kom upp í blokkinni og þurfa öll dýr að fara. Allt í einu datt mér í hug hvort að Stefanía frænka gæti hugsanlega tekið hana, þá allavega á meðan við erum úti og sjá svo til. Og hún Stefanía kom okkur til bjargar tók bæði við Kötu og eina kettlingnum sem var eftir og verða þau hjá henni á meðan við erum úti, þá höfum við allavega meiri tíma til að finna nýtt heimili fyrir þau og þurfum ekki að lóga neinum. Mér til mikillar gleði :d:d:d Einnig fékk ég aðrar miklar gleðifréttir í gær en veit ekki hvort þær fréttir séu orðnar nógu opinberar þannig að ég megi koma með það hér ;) Svo þegar ég kom heim í gær þá var kominn póstur til mín svo að það virðist vera komið í lag líka.

Þannig að eins og þið sjáið þá hef ég góða ástæðu til að fara áhyggjulaus í frí eftir þetta allt saman.
Jæja, ég varð bara að segja ykkur hvað ég er hamingjusöm og ég er að fara til Barcelona ekki á morgun heldur hinn:!::haha::!::haha::!:

later Tinna Rós


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 18:24:17 / tinna_ros

Kisa og kettlingar

Halló halló!
Mig vantar svooo... hjálp ykkar.

Ég er ennþá með tvo kettlinga eftir og svo þarf ég að láta frá mér hana Kötu mína líka. Ég er að fara út á mánudaginn svo að ég verð að finna heimili ekki seinna en um helgina. Það er svo erfitt fyrir svona lítil kríli ef þau þurfa að fara í pössun áður en þau fara á nýtt heimili. Þau eru kassavön og Kata líka en hún vill helst gera þarfir sínar úti og þarf þess vegna að geta alltaf átt möguleika á því að fara út. Viljiði láta mig vita ef þið vitið um einhvern sem langar í kettling eða tæplega ársgamla læðu eða láta hann/hana vita af mér?? Það væri ofboðslega gott!
Hér koma myndir:



þessi gulbröndótti er högni en þessi þrílita er læða.
Ég veit að þessi helgi er ekki sú besta fyrir fólk til að fá sér nýjan kött en ég vil bara ekki þurfa að lóga þeim.

later Tinna Rós


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 20:58:40 / tinna_ros

Ritstífla?? Ekki lengur...

Jæja, kominn tími á blogg?? Ég skal reyna...

Hmmm síðan síðast. Virku dagarnir mínir eru svona ca oftast eins ég fer í vinnuna og síðan heim eða finn mér e-ð að gera í bænum því að Óli er aldrei heima fyrr en seint á kvöldin þar sem hann er alltaf að vinna í því að gera rallybílinn kláran fyrir næstu keppni...(Eða að gera skoðunarbílinn kláran svo hægt sé að skoða leiðarnar á honum þar sem það má ekki á rallybílnum)

Kettlingarnir stækka og stækka og stækka og eru orðnir alveg agalega sætir. Þeir hafa reyndar alltaf verið sætir en núna eru þeir farnir að hlaupa um og slást og svoleiðis. Hérna eru myndir af þeim krúttunum, teknar bara áðan þeir eru 5 vikna í dag. Gekk pínu illa að taka myndir af þeim þar sem þeir eru alltaf á iði, fannst ekkert  gaman að ég væri e-ð að reyna að stilla þeim upp fyrir myndatöku.





Þessir á efstu myndinni og á neðstu myndinni eru þeir einu sem eru ekki komnir með heimili ennþá. En ég hef ennþá 3-4 vikur til stefnu áður en ég fer út. Annars finn ég bara einhverja pössunarpíu fyrir þá.

En annars er það sem er helst að frétta er það að við fáum ekki að halda íbúðinni sem við erum í hérna á vellinum. Ég er alveg band brjáluð út í þetta heimska ljóta lið þarna þarna á Keili. Við byrjuðum á því að spyrja í vetur einhverntíma hvort það væri ekki möguleiki að ef Minney myndi flytja út og ég myndi byrja í Háskólanum hvort við myndum ekki fá að skipta um nafn á íbúðinni og jú jú það er ekkert mál þið þurfið bara að borga fyrir það. Já ekkert mál, ég nenni frekar að borga heldur en að flytja, bæði leiðinlegt að flytja og við erum í svo fínni íbúð á jarðhæð og á góðum stað á svæðinu. Svo sendi ég tölvupóst til Keilis og spyr um það hvenær við getum gert þetta hvort að ég þurfi að vera komin með staðfestingu á skólavist og svona áður en við gerum þetta. Við honum fékk ég ekkert svar. Minney fór síðan um daginn upp á skrifstofu til þeirra og spurði hvort þetta væri ekki örugglega hægt, jújú en þá voru þau samt búin að lækka verðið á þessu og að við þurfum bara að senda beiðni um þetta á netinu. OK bara gott mál með verðið og við sendum beiðni á netinu en henni er hafnað!! Afhverju? jú vegna þess að ég hef ekki sýnt fram á það að ég sé að fara í skóla í haust. Ég tala við þau og segi þeim að ég geti ekki fengið staðfestingu á skólavist fyrr en ég sé búin að borga skólagjöldin og að ég geti ekki borgað skólagjöldin fyrr en að ég fái gíróseðilinn. Sorry fyrir þig eru svörin sem ég fæ! :evil: En það endar með því að það sé kannski möguleiki ef að ég sýni bara eitthvað um það að ég sé skráð í Háskólann, Ok ég prentaði þá út það sem ég hafði á netinu um að HÍ væri búinn að samþykkja umsóknina mína og fer með það til þeirra.
Þá segja þau mér að það sé ekki hægt að skipta um nafn á íbúðinni. Vegna þess að við Minney erum ekkert skyldar. Og að þau geti ekki úthlutað okkur svona stórri íbúð vegna þess að þau eru ekki að úthluta svona stórum íbúðum til einstaklinga núna. Svo segir konan við mig að Minney hafi komið upp á skrifsofu í síðustu viku og hafi ekkert nefnt um þetta! Sem sagt lýgur upp í opið geðið á mér. Hvernig átti þá Minney að hafa fengið þær upplýsingar sem hún lét mig hafa eftir þessa heimsókn til þeirra. En allavega ég skil svo sem alveg meininguna með því að vera ekki að úthluta svona stórum íbúðum á einstaklinga heldur fjölskyldufólk. En ég var samt að frétta frá einni sem er að vinna með mér að vinkona hennar er EIN ekki einu sinni með kall og hún fékk úthlutaðri stórri íbúð, svo AFTUR er verið að ljúga upp í opið geðið á manni!! En kellingin bauðst til að koma á móts við okkur með því að láta okkur hafa einstaklings íbúð, sem er næstum því HELMINGI minni en íbúðin sem við erum í núna. Ég er svo reið út í þetta lið. Ef að leigan væri ekki svona ódýr hérna þá myndi ég fara. EN ég vil samt ekki gera þeim það til geðs að losna við mig. Þau skulu fá að díla við mín mál.
Beyglan lofaði reyndar líka að við skyldum fá stærri íbúð um leið og fjölskyldufólkið myndi minnka á biðlistanum og hún skal sko standa við það. Ég ætla sko að hringja í hana í hverjum mánuði eftir að fólk á að vera búið að staðfesta sig á biðlistanum.
Þetta fólk er víst samt vant því að ljúga að íbúunum hérna og það þyrfti eiginlega að fá bara fólkið hérna á móti þeim. Eins og flestir vita þá fannst myglusveppur í einhverjum íbúðum hérna. Það kom í fréttum, seinna kom í fréttum að þesi myglusveppur væri ekkert hættulegur. Afhverju eru þá bæði börn og fullorðnir búnir að vera meira og minna veikir síðan þau fluttu hingað? En já sá myglusveppur sem sást lýsti sér sem svartir blettir í hornum í loftum við útveggi. Það voru svona blettir hjá mér og ég bað um að kíkt yrði á það í mars. Ég fékk engin svör við því, svo bað ég aftur um það í maí og þá kom hérna maður og kíkti á þetta. Jújú þetta var pott þétt myglusveppur. Og það koma hérna smiðir og laga þetta, taka stykki úr veggjunum sprauta mygluvarnar efni í vegginn og laga svo vegginn og mála. Síðan fór ég á húsfund hérna í húsinu og þá fór ég að tala við parið sem býr fyrir ofan okkur og þá hafði lyktin af þessu mygluvarnarefni farið upp til þeirra og þau gátu ekki sofið í svefnherberginu sínu í 3 nætur. Er eðlilegt að þau séu ekki látin vita af þessu?? Svo hringdu þau í Keili til að spyrja hvort það hefði fundist sveppur einhvers staðar í húsinu og svarið sem þau fengu var "nei". Samt vissu þau af svepp í íbúðinni okkar og íbúðinni við hliðina á okkur. Sem sagt aftur ljúga upp í opið geðið á fólki! Er þetta eðlileg starfsemi hjá fyrirtæki?? Ég bara spyr.
Þannig að við erum að fara að flytja líklega bara um leið og við komum heim frá Barcelona, þess vegna væri gott að losna við alla kettlingana áður en við förum út OG við þurfum að losa okkur við hana Kötu okkar líka þar sem við verðum á annarri hæð og munum ekki getað hleypt henni út.

En snúum okkur nú að öðru. Ég ætlaði að segja ykkur frá helgunum síðasta mánuðinn.
Fyrsta helgin í júní: Man ekki eftir að hafa gert neitt merkilegt þá helgi, kannski bara sofið út og haft það notalegt.
Önnur helgin í júní: Stefndi ekki í neitt merkilegt þangaði til að okkur var allt í einu boðið að koma með í Þórsmörk. Fórum þangað á föstudagskvöldi vorum svo í ÆÐISLEGU veðri á laugardeginum og höfðum það mjög gott í sólinni sem endaði svo svona:

Smá brunarúst með mikilli vanlíðan næstu daga.
Þriðja helgin í júní: Ég var veik alla helgina, lifði á verkjalyfjum og sýklalyfjum. En lét mig samt hafa það að kíkja í Hveragerði til Kolbrúnar og Njarðar á laugardeginum OG við keyptum okkur jeppa. Tvö mjög svipuð stykki á 70 þús. og nú er verið að vinna í því að taka úr þessum ljótari það sem vantar í hinn. Svo seldum við Subaru á 80 þús svo það var ekkert nema gróði á þessu. Þar sem að við eigum eftir síðan að selja hinn þegar búið er að nota það sem þarf að nota úr honum ;)
Fjórða og síðasta helgin í júní: Við fórum ásamt Kjartani sem er með Óla í rallinu og Önnu kærustunni hans í Ólafsvík. Þar sem þeir voru að fara að keppa í ralli helgina á eftir og þeir voru að fara að skoða leiðarnar sem þeir voru að fara að ralla. Við vorum þarna í skíta kulda rigningu og roki. Svona er sumarið á Íslandi. En samt sem áður ágætis helgi sem hefði þó getað verið ennþá betri.
Fyrsta helgin í júlí: Sem sagt síðasta helgi. Ég fór með Kjartani og Óla en Anna var að vinna, á Snæfellsnesið þar sem þeir voru að keppa í ralli á laugardeginum. Lentum í æðislega góðu veðri og ekki skemmdi fyrir að þeir unnu flokkinn sinn (1600 flokkur, eindrifsbílar) og flokkinn fyrir ofan sig (2000 flokkur) Og er ég endalaust stolt af þeim 8) Eftir rallið brunuðum við Óli síðan í Borgarfjörðinn og hittum þar mömmu, pabba, Kolbrúnu, Njörð og börnin þeirra. Gistum þar um nóttina og vorum svo í góðu veðri þar og enduðum síðan í sundi í Varmalandi áður en við fórum heim.

Næsta helgi er síðan alveg óráðin. Þar sem strákarnir þurfa að fara norður til að skoða fyrir næsta rall en eru samt að spá í að vera bara eina nótt. Fara á föstudegi, skoða á laugardegi og keyra síðan til baka. Þannig að sunnudagurinn fer líklega bara í afslöppun.

En jæja í þessu bloggi losaði ég um smá ritstíflu. Ef ég fæ engin komment á hana þá er óvíst hvenær ég blogga aftur
later Tinna Rós

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 18:10:07 / tinna_ros

kisumynd

Bara að setja inn eina af kisunum:



later Tinna Rós


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 10:55:13 / tinna_ros

Sitt lítið af hverju

Halló!

† Mig langar að byrja á því að votta öllum aðstandendum og vinum Björgvins Björgvinssonar samúð mína †
Björgvin var vinur Halla bróður, hann fékk sortuæxli sem dreifði sér svo hratt um líkamann að ekki var hægt að ráða við neitt. Hann lést aðfaranótt fimmtudagsins 22. maí síðastliðinn og lætur eftir sig konu og tvö börn. Útförin fór fram síðastliðinn föstudag og var mjög falleg.

Annars hef ég frá mörgu öðru að segja. Ég fór á skólaslit 22. maí og fékk þá út úr prófinu mínu. Ég er ekki alveg nógu sátt, en þó gekk þetta bara svona lala... Fékk lægra en í fyrra þannig að ég held að það sé ástæðan fyrir því að ég sé ekki nógu ánægð.

Fyrsta rally sumarsins var 16. og 17. maí. Ég gat reyndar ekki horft á það en strákunum gekk mjög vel, þeir voru í 2. sæti í sínum flokki. Sem er mjög gott fyrir fyrstu keppni saman. Svo bara rústa þeir þessu þegar á líður sumarið ;)
Næsta rall er núna um helgina, Suðurnesjarallið og vona ég bara að þeim gangi vel í því.

24. maí var partý með útskriftarárgangnum mínum sem ég því miður komst ekki í þar sem við systkinin vorum að halda surpriseafmælisveislu fyrir mömmu og pabba sem heppnaðist svona líka vel því þau grunaði nákvæmlega ekki neitt. En pabbi varð sextugur í fyrra en það var ekki hægt að halda upp á það þar sem afi dó fjórum dögum áður og var hugurinn við það að skipuleggja jarðaför meiri en að halda upp á afmæli. Svo varð mamma sextug þann 30. apríl síðastliðinn en hún flúði af landi brott á afmælisdaginn þannig að við ákváðum bara að halda veislu eftir að þau komu heim. En Kolbrún byrjaði á að bjóða þeim út að borða og á meðan vorum við hin að gera allt tilbúið heima hjá þeim svo komu þau heim og þá var bara fullt af fólki mætt á svæðið.

En hins vegar frétti ég af því að það hefði verið heldur dræm mæting í partýið af útskriftarárgangnum, mér finnst það ekki nógu gott og vona ég að það verði betri mæting næst, ég allavega mæti pott þétt næst ;)

Síðasta helgi var alveg frábær. Á laugardaginn sváfum við út og það var alveg yndislegt, eftir að við vöknuðum byrjuðum við á að fara í Bónus þar sem það var ekki einu sinni til morgunmatur á heimilinu og svo fengum við okkur morgunmat (kl 14:30 by the way). Svo settum við tjaldið út á svalir til að viðra það svo hægt sé að fara með það í viðgerð þannig að við getum notað það í sumar. Svo fórum við út og tókum aðeins til í bílnum eða tókum mesta draslið út honum því hann var orðinn uppfullur af drasli, farinn að gubba í hvert sinn sem við opnuðum hurð. Síðan var bara kominn kvöldmatur og við grilluðum okkur kjöt og horfðum svo bara á sjónvarpið og spiluðum Scrabble. Á sunnudaginn vöknuðum við snemma, Óli fór að vinna í rallybílnum og skoða rallyleiðir. Og ég fór og gekk hálfa leið á Esjuna. Ákvað að byrja á að fara bara stutt en fer svo lengra næst sem verður líklega um þar næstu helgi. Eftir það fór ég í Hveragerði til Kolbrúnar sys þar voru mamma og pabbi en pabbi var að hjálpa mági mínum að tengja heita pottinn í garðinum hjá þeim. Síðan fór ég bara heim og lagðist í rúmið, frekar þreytt eftir daginn.

Mánudagur og þriðjudagur liðu bara eðlilega en á þriðjudagskvöldið fannst okkur Kata vera orðin heldur óróleg en leyfðum henni bara að eiga sig og vorum ekkert að skipta okkur af henni. Svo fórum við bara að sofa, en á miðvikudagsmorguninn þegar ég vaknaði fór ég fram og sá hana hvergi og túnfiskurinn var ennþá á diskinum hennar sem er mjög óvenjulegt því að hún ELSKAR túnfisk þá ákvað ég að kíkja inn í skápinn þar sem ég var búin að útbúa kassa fyrir hana til að gjóta í, liggur hún þá ekki bara þar með hrúgu af kettlingum ofan á sér, en þar sem hún kann ekki að vera kyrr þá var hún alltaf e-ð að velta sér ofan á þá og eitthvað þannig að við töldum bara 5 kettlinga áður en við fórum í vinnunna, svo kom ég heim aftur eftir vinnu og fór að skoða þá betur þá taldi ég 6 þannig að hún hefur líklega falið einn einhversstaðar undir sér um morguninn. En núna á ég þá 6 stykki af pínu litlum og sætum kettlingum. Þannig að það verður fjör þegar þeir fara að hlaupa um íbúðina og ég þarf að fara að kassavenja þá. Ég hendi inn mynd af þeim við tækifæri en batteryið á myndavélinni var tómt þegar ég ætlaði að taka mynd í gær þannig að ég er að hlaða það núna og get örugglega tekið mynd í kvöld ;)

En jæja ætli það sé ekki best að fara að vinna aftur

Later Tinna Rós kattakona ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 20:31:47 / tinna_ros

Ég á mér líf!!

Ég veit það er langur tími síðan ég hef skrifað eitthvað að viti hérna. En ég tel mig hafa góða ástæðu fyrir því. Ógeðslega mikið að gera hjá mér... en ekki lengur. Ég get loksins farið að eiga mér líf. Skólinn er loksins búinn og ég er hætt að vinna um helgar þangað til næsta haust.
Já ég tók miðstigs próf í söng þann 6. maí síðastliðinn. Mér gekk held ég bara ágætlega og var mikið létt þegar þetta var búið. Nú á ég bara eftir að fá að vita hvað kemur út úr þessu en það fæ ég ekki að vita fyrr en á skólaslitunum þann 22. maí. Mánuðurinn fyrir próf, sem sagt allur síðasti mánuður, fór í vinnu og æfingar, æfingar og aftur æfingar. Eftir prófið hef ég síðan bara verið að njóta þess að slaka á og klára að vinna í 66. Ég sem sagt kláraði það á laugardaginn. Á laugardagskvöldið fagnaði ég próflokum og vinnulokum með því að fara á djammið með Karenu, Bríeti og Selmu. Við byrjuðum að fá okkur í glas á Smiðjustígnum og fórum svo á Kofann til Ásu Ninnu en svo bara lokaði allt kl 3, en svona celebs eins og ég fá að vera inni á Kofanum eftir lokun ;) En takk æðislega fyrir kvöldið stelpur og takk æðislega fyrir mig Ása Ninna!

En á næstunni er mikið að gera hjá mér... Næsta föstudag og fram á laugardag er "óvissuferð" sem er ekki óvissuferð lengur þar sem yfirmaðurinn minn kann ekki að halda svona leyndu hehe:haha::haha: Einnig er Óli að fara að keppa í fyrsta ralli sumarsins næsta föstudag og laugardag, og ég get ekki horft á hann því að ég verð í "óvissuferð". Á laugardagskvöldið er líklega eitthvað djamm eftir rallið.
Helgina eftir þetta er líka djamm bæði kvöldin. Á föstudagskvöldinu er staffadjamm hjá 66 kellunum og á laugardagskvöldinu er Eurovisionpartý með prom þema með útskriftarárgangnum mínum þar sem 2 ár eru liðin frá útskriftinni okkar.

Já og svo er hún Kata mín kettlingafull og mér finnst líklegt að hún eigi að gjóta í byrjun júní. Svo ef einhvern langar í kettling í byrjun ágúst þá bara látið mig vita. Núna gerir hún ekkert annað en að sofa allan daginn og er hætt að getað hoppað oft á dag inn og út um gluggann eins og hún var vön. Núna fer hún ca 2svar-3svar á dag og sefur svo bara :lol:
Við erum svo líka að fara til Barcelona í byrjun ágúst eða nánar tiltekið 4. ágúst í viku með allri tengdafjölskyldunni minni. Það verður stuð. Og ef einhver vill bjóða sig fram í að passa kettlinga og mömmu á meðan þá megið þið láta mig vita

Jæja, held þetta sé komið gott í bili.
later Tinna Rós glaða

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 10:45:01 / tinna_ros

Mótmæli eða skrípaleikur??

Góðan dag og gleðilegt sumar:!:

Ég get nú eiginlega ekki orða bundist yfir hasarnum hérna í gær og fyrradag. Jahérna!
Fyrst þegar atvinnubílstjórar byrjuðu á þessum mótmælum hugsaði ég fint. Það er einhver sem stendur upp og gerir eitthvað þar sem þessi þjóð lætur bjóða sér bókstaflega hvað sem er og enginn segir neitt. Þetta truflaði mig ekki neitt enda lenti ég aldrei í töfum út af þessu og ég sýndi öllum skilning sem komu of seint vegna mótmæla. Svo komu fréttir um það að mótmælin myndu halda áfram en EKKI á götum borgarinnar. Mikið varð ég glöð því að þó svo að ég hafi ekki lent í neinum töfum þá var ég með hnút í maganum á hverjum einasta degi um það hvort að ég yrði fyrir töfum einhversstaðar. Svo heyrir maður ekkert í þeim í einhvern tíma... þangað til allt í einu á miðvikudaginn. Þá lokuðu þeir Suðurlandsveginum! Og voru svo að reyna að fá almenning með sér í þetta... Hvað kemur almenningi hvíldartíminn þeirra við?? Ekki það að ég skilji ekki að þeir séu að mótmæla þessu en almenningur á ekkert að vera að skipta sér af því. En með eldsneytisverðið. Mér finnst eldsneyti líka allt of hátt en ég loka ekki götum fyrir þeim sem geta ekkert gert í þessu. Hvernig væri að umkringja frekar heimili mannanna sem stjórna þessu þannig að þeir komist ekki lönd né strönd? Fyrir utan það að þá er Ísland ekkert með hæsta eldsneytisverðið í Evrópu, við erum bara á meðal þeirra lægstu sko.
En aftur að miðvikudeginum. Ég veit vel að Lögreglan var oft búin að biðja þá um að færa bílana en þeir gerðu það ekki en svo þegar einn bílstjórinn ætlaði nú að fara að taka bílinn sinn þá leyfa þeir honum ekki að taka hann og fara að spreyja piparúða á liðið. Þó að mér finnist þetta nú svolítið langt gengið hjá bílstjónunum þá fannst mér líka aðeins of harkalega tekið á þessu hjá lögreglunni. Svo var endalaust hamrað á því að lögreglumaður hefði þurft að fara á slysadeild vegna grjótkasts frá manni en hvað fóru margir á slysadeild vegna harkalegra átaka frá lögreglu?? Þeir voru aðeins fleiri. Mér finnst eins og lögreglan á Íslandi fái oft ekki nógu mikinn hasar og þurfi að búa hann til. Eins og í þessu tilviki, það hefði bara nákvæmlega ekkert þurft að nota þennan piparúða á liðið. En svo var annað sem ég virkilega skildi ekki. Það voru þessir unglingar sem voru þarna að kasta eggjum. Eiga stjónvöld að taka mark á svona asnaskap?? Ekki hefði ég heldur viljað eyða dimmission deginum mínum í það að mótmæla! Dimmitteringin á að vera áhyggjulaus dagur.
En svo þegar mestur hasarinn á Suðurlandsveginum var búinn tók lögreglan nokkra vörubíla af svæðinu og geymdi þá á gamla strætó stæðinu við Kirkjusand. Ekki nóg með það heldur skemmdi hún bíla til að koma þeim af svæðinu. Er það réttlátt?? Og bíllinn sem skemmdist mest var ekki einu sinni ólöglega lagður. Hann var bara úti í kanti og ekki fyrir neinum.
Í gær las ég síðan mbl.is og sá þar að Arnór Jónsson sem ég er reyndar ekki alveg viss hver er en ég hef nú samt heyrt nafn hans nefnt áður í sambandi við þessi mótmæli. Sendi Birni Bjarnasyni það viðbjóðslegasta bréf sem ég hef á ævinni vitað um. Í fyrsta lagi segir maður ekki nokkrum manni að drepa sig, sama hversu illa manni líkar við hann. Í öðru lagi þá sendir maður ekki hátt settum manni svona virkilega illa stafsett bréf. Þessi Arnór er eitthvað virkilega veikur í hausnum að gera þetta. Heldur hann virkilega að þetta hjálpi eitthvað?!? Einnig opnaði lögreglan fyrir vörubílstjórum í gær til að sækja bílana sína. Kemur þá ekki einhver talsmaður bílstjóranna sem þó átti ekki bíl þarna inni og gefur einum lögreglumanninum bara einn á kjammann! Hvað á það að hjálpa? Ég er svo hrikalega hneiksluð á öllum þessum látum. Mér finnst bara allir bæði bílstjórar, lögregla og eggjakastarar hafa gengið of langt í þessum látum. Þetta er orðinn bara einn stór skrípaleikur!

Úff hvað var samt gott að koma þessu frá sér.
later Tinna Rós

» 8 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 14:16:39 / tinna_ros

Ég ætla aldrei...

...Aftur í bíó. Hafiði heyrt um hækkunina? Miðinn fer upp í 1000 kall! Ég man nú eftir því þegar það var nóg að fara með 1000 kall til að fara í bíó og það dugði fyrir poppi og kóki líka. Nú þarf að fara með 2000 kall til þess að getað fengið sér popp og kók þar sem það hefur hækkað svo líka. :frown:

En við nennum ekki að ræða meira um það. Allt hefur gengið sinn vanagang síðustu daga. Þar síðasta föstudag dró ég Óla með mér í leikhús því að ég fékk miðann svo ódýrt, fórum að sjá Baðstofuna eftir Hugleik Dagsson, mjög fínt leikrit. Þó held ég að þetta hafi bara verið svona í gamla daga, þetta var bara pínu ýkt með súrum húmor. En ágætis skemmtun. Svo var ég bara að vinna yfir helgina. Síðasta föstudag fórum við aftur í leikhús en þá fórum við á Kommúnuna. Mjög skemmtilegt líka. Mér líður eins og plebba að fara í leikhús tvö föstudagskvöld í röð :$ En já síðan var ég bara í fríi um síðustu helgi, ég og Minney sátum og horfðum á video allan laugardaginn. Frekar notalegt. Á sunnudaginn kíktum við Óli í bæinn, ég dröslaði honum í Ikea og við versluðum okkur loksins nýja kommóðu þar sem gamla var að hruni komin og við versluðum okkur spegil í herbergið riiiiisa stóran :D

Um næstu helgi náði ég svo að redda mér fríi í vinnunni svo að ég gæti nú haldið upp á afmælið mitt og þá verður heljarinnar partý með blómaþema. Ef þú hefur ekki fengið boðskort en finnst að þú hefðir átt að fá boðskort kíktu þá á tölvupóstinn þinn og tékkaðu hvort það hafi ekki borist þangað. Ef það er ekki þar láttu mig þá vita og ég athuga hvað ég get gert. Á sunnudaginn, afmælisdaginn sjálfan, ætla ég að vera búin að baka köku og þá er öllum úr fjölskyldunni minni velkomið að kíkja í köku :haha:

Nú eru ekki nema 4 vikur í próf hjá mér og ég er engan vegin nógu vel undirbúin. Þyrfti að nota allar þessar vikur sem best en þó er bara svo mikið að gera hjá mér eins og alltaf, ég hef þó ekki miklar áhyggjur af því að þetta reddist ekki. Ég er svo klár 8)

Í gær var Minney að tjá mér það að hún myndi flytja í bæinn áður en prófin myndu byrja hjá henni þannig að frá og með lok apríl verðum við bara tvö í kotinu, en Minney ætlar að vera svo góð við okkur að leyfa okkur að hafa íbúðina á hennar nafni þangað til ég get skráð hana á mitt nafn þegar ég hef fengið samþykki í háskólann.

later Tinna Rós blómastelpa - - munið eftir að kvitta ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 18:32:24 / tinna_ros

MARS

Kannski kominn tími á að maður skrifi eitthvað hérna, og hún systir mín ætti að taka mig til fyrirmyndar og skrifa eitthvað hjá sér líka 8)
Eitthvað hefur nú gerst síðan síðast, þar má helst nefna:
   *Vinnuna, sem gengur sinn vanagang á virkum dögum nema bara það að vinnutímanum mínum var breytt og núna fer ég bara heim á miðjum degi :haha: En núna mæti ég 7:50 í staðin fyrir 8:35 og er búin 15:45 í staðin fyrir 16:30. Þvílíkur munur og þegar ég er ekki í skólanum næ ég að taka 4 rútuna heim :haha:
   *Vinnan aðra hverja helgi er alltaf eins
   *Skólinn er oftast eins, en nú er ég bara að vinna í lögunum sem á að taka á prófinu í maí, sem Ása Ninna ætlar að vera svo góð við mig og spila undir með mér á fiðluna sína í einu laginu. Það verður geggjað flott.
   *Helgina tveim vikum fyrir páska var ég voða bjartsýn og ætlaði mér að sauma svaka flottan kjól fyrir árshátíðina í vinnunni minni sem átti að vera viku seinna. Þannig að ég ætlaði að sauma kjól á einni viku. Það byrjaði rosa vel en þegar ég var búin að sauma að svona mestu saman átti bara eftir að sauma saman að aftan og mátaði þá var hann svo risastór á mig að ég hefði mátt bæta á mig ca 70 kg til að hann myndi passa, þannig að ég fór að reyna að þrengja en alltaf endaði ég með hálsmálið í einhverju basli svo að ég hætti á föstudagskvöldinu með grátstafinn í kverkunum yfir því að geta ekki klárað.
   *Helgina á eftir var ég síðan að vinna og á laugardagskvöldinu var árshátíðin mikla og ég með engan kjól tilbúinn, jú ég tók með mér jólakjólinn minn í bæinn til öryggis til að hafa eitthvað en fannst hann ekki nógu árshátíðarlegur, fór síðan í kaffinu mínu og rölti um Kringluna til að athuga hvort ég myndi ekki finna mér kjól... en það eina sem ég sá voru einhverjir fermingarkjólar, það er jú víst tímabilið núna. Er svo alveg að gefast upp og er að labba út úr síðustu búðinni sem er nú samt eiginlega að verða mín uppáháldsbúð þegar ég sé þennan ÆÐISLEGA kjól. Ég finn mitt númer, fer og máta... oooog HANN PASSAÐI. Og ég hafði kjól til að fara í á árshátíðina og ég tók gleði mína á ný. Hérna sjáið þið svo kjólinn sem ég er svo montin af.

   *Páskafríið var síðan um síðustu helgi og var hún mikið til notuð í að slappa af. Fórum í mat til tengdó á skírdag. Fengum okkur bíltúr og elduðum hérna heima á föstudaginn langa. Á laugardeginum fórum við í heimsókn í Hveró til Kolbrúnar systur sem síðan bauð okkur í mat, takk æðislega fyrir okkur. Á páskadag borðuðum við páskaegg, fengum tengdó í heimsókn og elduðum frábæran mat og borðuðum eins mikið og við gátum í okkur látið. Á annan í páskum fór ég svo í fermingarveislu mér til mikillar skemmtunar og við Óli borðuðum sukk mat áður en við síðan fórum heim. Svo var það bara vinna í dag.

Jæja þetta er orðið ansi langt og ég þarf að fara að elda svo að maturinn verði tilbúinn þegar Óli kemur heimþ

later Tinna Rós

» 9 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 13:45:30 / tinna_ros

Hitt og þetta

Nú langar mig að kvarta yfir kommentafjölda á þessari síðu! Kvart kvart kvart!!! Þá er það frá.

Tónleikarnir gengu bara ágætlega þrátt fyrir veikindi í vikunni áður. Búin að fá matið það var bara fínt, mér var reyndar sagt að ég þyrfti að túlka betur sem ég mun gera á prófinu sem ég fer í í maí :haha:
Svo í síðustu viku þá varð ég bara veik aftur og lá í rúminu alla síðustu helgi þar sem ég mátti ekki við því að missa röddina aftur. Þannig að ég komst ekkert á snjóbretti eins og ég hafði ætlað mér, en það var alveg frábært færi í fjöllunum um helgina. Þessi vika hefur farið í að ná mér almennilega af þessum bévítans hósta og er það alveg að takast og vona ég að hann komi nú ekki aftur því hann er ekki velkominn! En ég náði loksins að stíga aðeins á nýja snjóbrettið mitt í gær, og já Harpa ég er búin að eyða miklum tíma í að leita mér að bretti af réttri stærð á netinu og fann þetta loksins, held að fæstir séu í því að reyna að selja brettin sín þegar svona mikill snjór er. En þetta var einhver strákur sem hafði keypt sér einhvern svaka pakka sem hann síðan notaði aldrei svo hann ákvað að selja hann sem hentaði svona svakalega vel fyrir mig :haha::haha: En í dag er ég að drepast í öllum skrokknum af harðsperrum þar sem ég er í engu formi og það reynir svo sannarlega á að fara á bretti í fyrsta skipti eftir tveggja ára hlé. En fyrir tveimur árum fór ég einu sinni, annars eru 4 ár síðan síðast og það tapast ansi mikið á þeim tíma.
Staffapartý í báðum vinnunum mínum á morgun upphitun í símaverinu strax eftir vinnu og svo fer ég til stelpnanna í 66° n um kvöldið, ætla þó ekki að vera lengi þar sem ég á vinnuhelgi framundan og ég er strax orðin þreytt. En ég hef nægan tíma til að sofa seinna :D

Hef ekkert meira að segja....

later Tinna Rós


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 15:25:08 / tinna_ros

Ég á líka snjóbretti nananananaaanaaaaa...!!!

Jæja, góðan daginn öll sömul.

Ég er loksins orðin frísk, en í þessum ömurlegu veikindum mínum missti ég af allt of mörgum tímum í söngskólanum og það rétt fyrir tónleika og þar að auki eru þetta matstónleikar því að ég er að fara í próf í vor. Og ég þurfti líka endilega að vera veik þegar ég er nýbúin að eignast litla frænku en hef ekki ennþá getað farið að sjá hana. En það fer nú vonandi að líða að því að ég geti það, en þessi vika er hins vegar mjög löng og ströng hjá mér og hef ég engan tíma til að gera neitt fyrir sjálfa mig né varla fyrir aðra, þó ætla ég að gera mér ferð til að heimsækja elskulegan bróður minn á morgun þar sem hann á enn einn afmælisdaginn.

Annars er bara allt gott að frétta. Var að vinna um þar síðustu helgi og fór í sumarbústað um síðustu helgi. Keyrðum austur í Úthlíð seinnipart föstudags á undan veðrinu. Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir og svoleiðis þá fór veðrið að versna allsvakalega og á tímabili hélt ég að kofinn myndi fjúka ofan af okkur. Ég horfði út um gluggan í átt að vindinum í smá stund og ég sá bara glerið dúa. Ekki mjög traustvekjandi. Svo fór rafmagnið, en lýsingin af eldingunum bætti það upp. Á laugardagskvöldið fórum við á þorrablót á Laugarvatni og var ölvun þar mikil (samt ekki á mér :$) og var mjög gaman. (held ég :$)

Í gær fór ég og keypti mér snjóbretti. Notað reyndar, en þó bara notað tvisvar og það sést ekki mikið á því. Fékk allan pakkann á 27 þús. Sem er nú ekki mikið. Það voru ekki nema smávægis rispur á því, ekkert djúpar og ég er mjög ánægð með það.

Í kvöld er tónleikarnir og vona ég að þeir reddist þrátt fyrir ekki nógu miklar æfingar. Á morgun er fundur í vinnunni og afmæli hjá elskulegum bróður mínum. Á fimmtudaginn er ég að vinna fram á kvöld. Eins og þið sjáið þá kannski að þá er þétt dagskrá í þessari viku hjá mér. OG ég er að vinna alla helgina, þannig að í lok næstu viku þegar ég verð búin að vinna stanslaust í tvær vikur þá ekki láta ykkur bregða ef ég verð eitthvað úrill. En svo ætla ég að hvíla mig vel um þar næstu helgi svo að ég verði ekki svona úrill lengi.

Nú er ég búin að segja ykkur frá öllu sem hefur verið að gerast hjá mér. Og Inga ég lofa að fara að kíkja. Þetta er ekki hægt lengur. Meira var það ekki í dag.

later Tinna Rós 


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 18:42:25 / tinna_ros

Mig langar...

...svooo að fara að sjá nýjustu frænkuna mína, ég er svo lasin að ég vil ekki fara og smita hana af öllum sýklunum í hálsinum og nefinu á mér. Já, ég varð sem sagt lasin síðast liðinn fimmtudag, fór snemma heim úr vinnunni og mætti ekki í vinnuna á föstudaginn, hefði reyndar ekki getað mætt í vinnuna á föstudaginn þó ég hefði verið frísk þar sem Reykjanesbrautin var lokuð til hádegis og eftir að hún var opnuð var svo mikil biðröð að það hefði tekið sinn tíma ef maður hefði ætlað að fara eitthvert. Þannig að við vorum bara öll þrjú heima allan föstudaginn. En þá var ég nú orðin töluvert frískari en ég var þó ennþá með mikla hálsbólgu og eins á laugardaginn, en ég lét það nú ekki stoppa mig í að fá mér smá bjór og fara í smá stund niður í bæ með stelpunum sem gerði það að verkum að ég vaknaði þegjandi hás í gærmorgun og í morgun var ég ekkert skárri, og þar sem að ég er í vinnu þar sem ég nota mest megnis röddina allan daginn að þá hef ég ekkert farið í vinnuna í dag. En þar sem ég er nokkuð hress að öðru leiti ef ég verið mjög dugleg við að þvo þvott og telja dósir í dag ;)

En svo tók ég eitthvað próf áðan sem segir til um það hvað ég lifi lengi þetta eru niðurstöðurnar úr því.

You Will Die at Age 76
You're pretty average when it comes to how you live...
And how you'll die as well.

 Fékk þetta á þessari síðu: http://www.blogthings.com/whatagewillyoudiequiz/

later Tinna Rós 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 14:05:54 / tinna_ros

Röfl.

Það er bara allt í gangi þessa dagana... Borgarstjórnin fallin, AFTUR! Brjálað veður, svo brjálað að ég var veðurteppt í morgun, en ég er nú komin í vinnuna núna. Þetta gerist þegar maður ákveður að búa í rokrassgatinu Keflavík. En ég fer nú bara alveg að fara að flytja lögheimili mitt þangað vil ekki lengur taka þátt í þessari vitleysu sem er í gangi hérna í borginni. 3 borgarstjórar á einu ári, og líklegt er að það verði sá fjórði. Því ég bara trúi því ekki að þeir haldi út kjörtímabilið þessir jólasveinar. En svona fyrir ykkur sem finnst mjög furðulegt að ég sé farin að tjá mig um stjórnmál þá fór ég að fylgjast ögn meira með þessu eftir að ég byrjaði að vinna hérna í símaverinu, en áður en ég fór að vinna hér vissi ég nú varla hver var borgastjóri, hvað þá meira.

En annars er alltaf jafn mikið að gera hjá mér í vinnu, skóla og aukavinnu. En ég gaf mér þó smá tíma síðastliðið laugardagskvöld í smá djamm, en ég og Minney ákváðum að halda smá partý fyrir fólkið sem við þekkjum sem er flutt þarna á Völlinn. Og mættu ansi margir, eða Bylgja, Binni og Jón Orri. Og Selma kom líka en hún var svona aukagestur þar sem hún býr ekki á Vellinum ;) allir aðrir voru að vinna eða eitthvað álíka skemmtilegt. En annars skemmtum við okkur mjög vel, spiluðum popppunkt, fórum í singstar og í limbó og það vann Bylgja með yfirburðum og ég komst að því að ég er ekki eins liðug og ég var hérna einu sinni þegar maður æfði íþróttir reglulega. En við enduðum síðan á því að fara niður í bæ og fórum á stað sem heitir Paddy's og var mjög gaman en þá vildu stelpurnar endilega fara á Yello, þangað inn fer ég aldrei aftur. Ég hélt ég myndi deyja úr leiðindum þarna. Þannig að hver sem vill koma með mér á Paddy's og vera bara þar allan tímann sem á bæjarferð stendur, bara látið mig vita. En ef það segir einhverjum eitthvað að þá er svona smá Pakkhússtemning á Paddy's. Mér finnst þessi techno dópista tónlist bara svo endalaust leiðinleg, ég bara trúi ekki að einhver hlusti á þetta án þess að vera á einhverju dóptrippi. En já ég fór bara heim eftir 10 mínútur í ógeðinu, sem betur fer reyndar því ég var að fara að vinna daginn eftir og hefði ekki mátt við því að vera mikið lengur, því þá hefði heilsan ekkert verið neitt svakalega góð í vinnunni. En það slapp því ég var svo dugleg að fara heim kl hálf 5.

Ég búin að komast að því að það er ekkert skrýtið hvað það er orðið dýrt að fara í bíó á meðan fólk (þá aðallega unglingar) fer svona hrikalega illa með alla hluti. Ég var að lesa í fréttablaðinu viðtöl við eigendur Smárabíós og Sambíóanna og það er oft verið að krota og spreyja á alla hluti og skera í sætin og taka innan úr þeim svampana. Á meðan þetta er svona og bíóin þurfa að vera að eyða morð fjár í að halda öllu sómasamlegu þá finnst mér ekki skrýtið að það sé svona dýrt að fara í bíó.

En vá hvað þessi færsla er orðin að miklu röfli, þetta átti ekki að verða svona en varð bara að koma þessu frá mér.

Og hér kemur smá gleðifrétt, ég eignaðist litla frænku aðfaranótt síðastliðins laugardags og vil ég óska Ingibjörgu og Hlífari innilega til hamingju með litlu prinsessuna.

En nú er ég hætt. 

later Tinna Rós


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 544 dögum
SVALBARÐI BABY!!!